Velkomin(n) á heimasíðu Eðalbíla
Fyrirtækið Eðalbílar ehf. var stofnað 3. júní 2009 þegar Davíð „Dassi“ Garðarsson, Bjarki Jónsson, Bragi Þór Pálsson og Arnar Einarsson, allir hoknir af reynslu í BMW, Range Rover, Land Rover og fleiri bíltegundum, tóku sig saman um að búa til í góðri aðstöðu sérhæft og fullbúið verkstæði fyrir þessar bíltegundir.
Eðalbílar fluttu 2010 úr gamla B&L húsinu upp í næstu götu fyrir ofan, í Fossháls 9, þar sem aðstaðan er til fyrirmyndir og öll möguleg tæki til að koma bílnum aftur á götuna. Nýja húsnæðið er 500 fermetrar með 5 lyftum auk þess að þrautreyndur útvarpsvirki er á staðnum.
Opnunartímar
| Mánudag til fimmtudag | 8:00 - 18:00 |
| Föstudag | 8:00 - 16:00 |
Tímapantanir
Sendu tölvupóst á edalbilar@edalbilar.is eða hringdu í síma 510 5050.
