Arnar Einarssonarnar@edalbilar.is
Móttaka & varahlutir

Fæddur 1968. Lærði rafmagnsfræði og flug, var líka í tölvuviðgerðum. Vann hjá Jöfri í Kópavogi í sjö ár og á verkstæði í Svíþjóð. Einn af stofnendum Eðalbíla eftir rúm 8 ár í varahlutaverslun B&L. Tekur á móti fólki, útbýr verkbeiðnir, deilir verkefnum, pantar varahluti og sér um reikninga. Er í raun allt skrifstofubatteríið í fyrirtækinu.

Bjarki Jónssonbjarki@edalbilar.is
Bifvélavirki, BMW

Fæddur 1970. Bifvélavirkjameistari síðan 2001. Byrjaði ferilinn í Bílaumboðinu en færðist með BMW til B&L 1995 þar sem hann var sérfræðingur og tæknistjóri í BMW. Stofnaði síðan Eðalbíla 2009 svo hann hefur unnið í þessum glæsivögnum í 17 ár auk þess að spreyta sig nú á Porsche. Frá 1996 sótt tíu námskeið hjá BMW.

Bragi Þór Pálssonbragi@edalbilar.is
Bifvélavirki, BMW & LR

Fæddur 1985. Bifvélavirki síðan 2008. Byrjaði að vinna hjá B&L 2003 og var einn af stofnendum Eðalbíla 2009. Jafnvígur á BMW, Range Rover og Land Rover, hefur gaman af hvoru tveggja. Á BMW en líka 10 cylindra Dodge Ram fyrir sunnudaga þegar ekki rignir enda með bullandi bíladellu.

Davíð Garðarssondassi@edalbilar.is
Bifvélavirki, Land Rover

Fæddur 1965. Bifvélavirki, tæknistjóri Landrover hjá B&L 1996 til 2009 þegar hann stofnaði Eðalbíla. Hefur sótt um 20 námskeið hjá Landrover og tvö í Hyundai. Byrjaði 1986 hjá B&L svo hann hefur helgað rúmlega helming ævi sinnar Landrover. Spyrjið hann um tattúið.

Davíð Már Steinarssondavidm@edalbilar.is
Bifvélavirki, BMW

Fæddur 1986. Byrjaði 17 ára að vinna við bíla en hóf störf hjá B&L 2004 í Hyundai þar til 2008 en sneri sér þá alfarið að BMW og varð tæknistjóri BMW hjá B&L 2009. Yngstur en mesti tölvugrúskarinn hjá Eðalbílum.

Jón Knútur Jónssonjonki@edalbilar.is
Bifvélavirki, BMW

Fæddur 1986. Lauk sveinsprófi í bifvélavirkjun 2008 og meistaraprófi 2011. Hóf störf hjá bílaverkstæðinu Stimpli árið 2005, færði sig síðan yfir til B&L 2007 og vann þar til ársins 2009. Hefur verið með annan fótinn hjá Eðalbílum síðan þeir opnuðu og varð fullgildur starfsmaður í september 2010.